Matthías Tryggvi Haraldsson, úr hljómsveitinni Hatari, ávarpaði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra Íslands í þakkarræðu þegar hljómsveitin tók við verðlaunum á Íslensku tónlistaverðlaununum í kvöld.
Matthías lýsti því yfir að Hatari væru einlægir stuðningsmenn Katrínar en væru smá „confused“ yfir núverandi ástandi.
“Okkur finnst tímabært að það sé útskýrt fyrir þjóðinni hvort að Ísland tilheyri þeim ríkjum sem kenna sig við algild mannréttindi, lýðræði og réttarríki.“
Hatari ávarpaði @katrinjak þegar hljómsveitin tók við verðlaunum sem tónlistarflytjandi ársins. „Við erum smá confused.“ pic.twitter.com/r1komm0h7L
— Íslensku tónlistarverðlaunin (@Istonverdlaunin) March 13, 2019