Guðmundur Benediktsson er, með fullri virðingu fyrir öðrum íþróttafréttamönnum, sá besti í sínu starfi hér á landi. Gummi lék á als oddi í fjörugum fyrri hálfleik Liverpool og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og átti nokkra gullmola.
Þegar Liverpool lenti í vandræðum gegn þungri sókn Arsenal fór hann upp á einhverja nýja tíðni sem sérfræðingar Nútímans er enn að reyna að greina.
Öskrið rataði að sjálfsögðu inn á Twitter
Aaaaaaaaaaaaa @GummiBen #leikurarsins #fotboltinet pic.twitter.com/T5Pn4LHUsq
— Hlynur Valsson (@hlynurvals) January 13, 2016
Og fleiri tóku eftir því. Hvernig er annað hægt?
Get sætt mig við þetta klúður hjá Giroud þegar @GummiBen gefur þetta öskur frá sèr
— Palmi Rafn Palmason (@palmirafn) January 13, 2016
??? @GummiBen þvílíkt hljóð
— Davíð Örn Hallgrímss (@david_hallgrims) January 13, 2016
Það öskrið #GummiBen #LivArs @GummiBen
— Gísli (@gislimagg) January 13, 2016