Ofurfyrirsætan Heidi Klum hefur í gegnum tíðina verið afar metnaðarfull á hrekkjavökunni og farið í ótrúlega búninga. Helgin sem er að líða var engin undantekning og Klum var algjörlega óþekkjanleg sem teiknimyndapersónan Jessica Rabbit úr kvikmyndinni Who Framed Roger Rabbit.
Klum sýndi á Instagram hvernig búningurinn varð til og það er ljóst að gríðarleg vinna fór í að umturna útliti hennar.