Nei, þetta er ekki mynd af einhverju sem hefur ferðast í gegnum meltingarveginn á manneskju.
Þetta er það sem þeir kalla D’oh Nut Burger og hann er settur saman til heiðurs Homer Simpsons en ást hans á kleinuhringjum er fyrir löngu orðin heimsþekkt.
Kokkarnir á hamborgarastaðnum PYT Burger eru á bakvið þennan svokallaða hamborgara sem er þó enginn venjulegur hamborgari. Þeir segjast bjóða upp á klikkuðustu hamborgarana í Bandaríkjunum.
Þetta er kleinuhringur sem hefur verið fylltur af nautakjöti og osti, líkt og hinar frægu Fíladelfíuostasteikarlokur. Kleinuhringurinn er svo að sjálfsögðu með gljáður með sykri og til toppa allt er beikoni stráð yfir.
Skoðaðu þessa mynd vel því ef þú smakkar er þetta mögulega það síðasta sem þú manst eftir þegar þú vaknar á bráðamóttökunni: