Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir hefur sett íbúðina sína við Nóatún í Reykjavík á sölu. Íbúðin er 79 fermetrar og stendur í húsi frá árinu 1957.
Í lýsingu á heimilinu á Fasteignavef mbl.is segir: „Hugguleg og vel staðsett 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með aðgengi beint út í garð í grónu hverfi miðsvæðis í borginni.“
Eignin verður til sýnis á opnu húsi á miðvikudaginn 10. júli á milli klukkan 17:15 og 18:00. Áætlað verð er 40 milljónir og 450 þúsund krónur.
Sjáðu myndirnar af Fasteignavef mbl.is hér að neðan