Auglýsing

Hera Hilmars er nýjasta hasarhetjan í Hollywood, sjáðu sturlaða stiklu úr Mortal Engines

Leikstjórinn Peter Jackson og félagar birtu í dag nýja stiklu úr stórmyndinni Mortal Engines. Eins og fram hefur komið á Nútímanum fer Hera Hilmarsdóttir með aðalhlutverkið í myndinni sem verður frumsýnd í desember. Horfðu á stikluna hér fyrir neðan.

Hera fer með hlutverk Hester Shaw í kvikmyndinni sem er byggð á samnefndri bókaröð eftir Philip Reeve og gerist í framtíðinni. Borgir jarðarinnar eru orðnar að einhvers konar vélum sem ferðast um og berjast um auðlindirnar sem eru eftir en jörðinni sem hefur verið lögð í eyði.

Hera hefur verið að gera það gott en hún fór með stórt hlutverk í þáttunum Da Vinci’s Demons ásamt því að fara með hlutverk í myndinni The Ottoman Lieutenant ásamt Josh Hartnett og Ben Kingsley.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing