Rapparinn Herra Hnetusmjör gaf í dag út nýtt myndband við lagið Fóbó, af plötunni Hetjan úr Hverfinu. Í myndbandinu, sem að minnir óneitanlega á Hollywood hasarmynd, má sjá Herra Hnetusmjör safna liði og grípa til vopna.
Sjá einnig: Hetjan úr hverfinu; nýjasta plata Herra Hnetusmjörs kom út í dag
Það bregður fyrir ýmsum þekktum einstaklingum í myndbandinu, má þar nefna tónlistarmanninn Huginn, rapparann Króla, og snapparann Hjálmar Örn.
Myndbandið má sjá hér að neðan.