Fjölmiðlamaðurinn Hjörtur Hjartarson er staddur á ferðalagi í Tælandi og hefur leyft fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum að fylgjast með.
Hann er meðal annars búinn að vera á slóðum James Bond.
Þessa dagana er Hjörtur staddur í Bangkok í Tælandi en eins og alltaf þegar Íslendingar ferðast, þá virðast þeir rekast á hvern annan.
„Það er oft sagt að heimurinn sé lítill og fyrir mér sannaðist þessi ofnotaði frasi heldur betur þegar ég rakst fyrir tilviljun á góðan félaga og Skagamann, Bjössa Bjarna á afskekktum stað í Bangkok,“ sagði Hjörtur á Facebook-síðu sinni og birti skemmtilegt myndband með.
Og hann var svona hissa
„Ég sá Bjössa útundan mér, tók upp símann og festi „atburðinn“ á filmu. Magnað!“ Horfðu á myndbandið og kostuleg viðbrögð Bjössa hér fyrir ofan.