Breska hljómsveitin The XX er ekki komin með leyfi frá yfirvöldum til að halda tónlistarhátíð við Skógafoss. Þetta kemur fram á mbl.is.
Eins og Nútíminn greindi frá í dag þá stóð til að halda hátíðina 14. til 16. júlí en samkvæmt frétt mbl.is þá hafnaði héraðsnefnd Rangárvallasýslu umsókninni eftir fund í vikunni.
Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Suðurlandi, segir í samtali við mbl.is að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem viðburðir eru auglýstir áður en tilskilin leyfi liggja fyrir. „Þeir eru byrjaðir að auglýsa áður en þeir eru komnir með leyfi í hönd,“ segir hann.
Í fréttinni um málið í dag kom fram að The XX hátíðin hafi fengið nafnið Night + Day. Ásamt sveitinni átti fjöldi annarra listamanna að koma fram á hátíðinni, þar á meðal Mr. Silla, Kamasi Washinton, Högni, Earl Sweatshirt, Robyn og Mr. Tophat og Call Super.
Hljómsveitin greindi frá þessu á Facebook en aðdáendur hennar höfðu beðið spenntir eftir fréttum eftir að myndskeið af Skógarfossi var birt á síðunni í gær. Miðinn fyrir helgina átti að kosta 169 evrur, eða tæplega 20 þúsund íslenskar krónur. Fyrir það fá gestir aðgang að tónleikasvæðinu og gistingu á tjaldstæðinu.
Í færslunni segir að hljómsveitarmeðlimir The xx hafi fallið fyrir Íslandi þegar þau voru þar fyrir nokkrum árum og nú geti þau ekki beðið eftir að snúa aftur.