Hörður Ágústsson, eigandi og framkvæmdastjóri, Maclands er þessa stundin staddur í langri röð fyrir utan dekkjaverstæði eins og líklega fjölmargir Íslendingar. Til að stytta biðina ákvað Hörður að panta sér pizzu frá Domino’s.
Hann greindir frá þessu sjálfur á Twitter
Ég er í röð að bíða eftir að dekkjaverkstæðið geti sett nagladekk undir Macland bílinn. Pantaði með pizzu í röðina frá @DPISL – spennandi! pic.twitter.com/Z5mFpnTdMP
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) November 8, 2017
Hörður var að gæða sér á glóðvolgri pizzu þegar Nútíminn náði í hann. „Ég er búinn að bíða hérna í 50 mínútur og á eftir að vera hérna lengur,“ segir hann.
Þetta er í fyrsta skiptið sem Hörður pantar sér mat meðan hann bíður í röð en hann mælir eindregið með því. „Mér fannst þetta eitthvað svo eðlilegt og það var lítið mál fyrir sendilinn að finna mig.“