Plötusnúðurinn Dóra Júlía Agnarsdóttir sendi frá sér sitt fyrsta lag undir listamannsnafninu J’Adora á miðnætti. Fyrr í kvöld hélt Dóra Júlía útgáfupartí á Petersensvítunni þar sem hún frumsýndi lagið og myndband við það. Horfðu á myndbandið hér að neðan.
Ágústa Ýr Guðmundsdóttir vinkona Dóru sá um að gera myndband við lagið en hún starfar sem sjónlistamaður í New York.
Dóra ræddi við Nútímann um lagið í gær en þá sagði hún: „Fyrir mér er lagið „a tribute to not giving a fuck.” Það er alltaf verið að mata mann á því hvernig hlutirnir eiga að vera og oftar en ekki á fólk erfitt með að passa inn í þann ramma sem samfélagið setur því.”
Horfðu á myndbandið