Hraði landriss er meiri nú en fyrir gosið 29. maí og á svipuðum hraða og það var í byrjun árs, en það hafa ekki verið miklar breytingar milli atburða hvað varðar hraðann á landrisinu.
Líkan byggt á aflögunargögnum sýnir að innflæði kviku inn í kvikuhólfið undir Svartsengi er nú 4-6 m3/s. Í upphafi kvikuinnskotsins og síðan eldgossins 29. maí er metið að um 13-19 milljón m3 hafi farið úr kvikuhólfinu. Niðurstöður líkanreikninga gefa til kynna að miðað við núverandi innflæði verður kvikuhólfið undir Svartsengi komið í svipaða stöðu og fyrir eldgosið 29. maí eftir þrjár til sex vikur.
Frá og með 2. júlí er því líklegt að kvikuhlaup og/eða eldgos fari af stað á næstu vikum og mánuðum.