Tónlistarmyndband um typpi og píkur í þættinum Bacillakuten á sænsku Barnastöðinni hefur slegið í gegn. Þegar þetta er skrifað er myndbandið komið með rúmlega 600 þúsund áhorf á Youtube. Myndbandið má sjá neðar í fréttinni.
Í texta lagsins kemur meðal annars fram að sá sem er ekki í buxum sé með dinglandi typpi og beran rass. Þá kemur fram að píkur séu frábærar og einstaklega elegant á gömlum frænkum.
Loks er typpið og píkan sagt vera æðislegt gengi. Nútíminn tekur undir það.