Auglýsing

Huldumaður réðist á nemanda grunnskóla í Reykjanesbæ í dag

Í lok skóladags í dag var ráðist á einn nemanda Myllubakkaskóla á unglingastigi fyrir utan Akademíuna í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Hlynur Jónsson, skólastjóri Myllubakkaskóla, sendir á foreldra og forráðamenn barna á unglingastigi.

Víkurfréttir greina frá.

„Honum varð sem betur fer ekki meint af en hefði getað hlotið mikinn skaða. Sá sem var gerandi í þessu máli huldi andlit sitt og vitum við því miður ekki hver var þar að verki. Þetta er að sjálfsögðu mál sem verður tilkynnt til lögreglunnar,“ segir skólastjórinn í bréfinu.

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir að ræða við börnin sín heima og ef þau hafa frekari upplýsingar að koma þeim áleiðis til skólans.

„Mikilvægt að þegar samfélagið okkar upplifir atvik sem þetta að standa saman og aðstoða börnin við að vinna úr þeirra upplifun. Enda málefni okkar allra að stöðva slík atvik og standa vörð saman um börnin okkar,“ skrifar Hlynur Jónsson skólastjóri í póstinum sem, eins og áður segir, Víkurfréttir greina frá.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing