Munurinn á Ófærð sem fór í loftið á sunnudagskvöld og leiðréttu útgáfunni sem fór í loftið í kvöld er loksins kominn í ljós: Dyrnar á þyrlunni voru lokaðar í réttu útgáfunni af þættinum.
Það vakti talsverða athygli í þættinum á sunnudagskvöld að dyrnar hafi ekki verið lokaðar á þyrlunni sem átti að flytja Sigga, persónu Þorsteins Bachmann, til Reykjavíkur.
Hér má sjá brot út þættinum sem átti ekki að fara í loftið
Og hér stekkur Siggi
En í útgáfunni sem var sýnd í kvöld voru dyrnar lokaðar. Litla breytingin sem við sögðum ykkur frá var því aðeins meiri en heimildir okkar hermdu. Vissulega hafði þetta ekki áhrif á framvindu en þetta var engu að síður mjög áberandi.