Það er áfram mat vísindamanna að ef til eldgoss kemur, er líklegast að kvikan leiti frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina og að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells. Merki um að kvika sé að brjóta sér leið upp til yfirborðs, koma fram í skyndilegri, staðbundinni og ákafri smáskjálftavirkni. Ef horft er til fyrri eldgosa á svæðinu gæti eldgos hafist með litlum fyrirvara, innan við 30 mínútur, allt eftir því hvar á Sundhnúksgígaröðinni kvika kemur upp.
Á íbúafundi með Grindvíkum sem haldinn var í gær kynnti Veðurstofan hraunflæðilíkön í tengslum við líklegar sviðsmyndir sem birtar voru fyrir helgi. Líkönin gera ráð fyrir stöðugu hraunflæði upp á 600m3/s og sýnir dreifingu hraunbreiðunnar eftir 6 klukkustundir.
Líkönin sem kynnt voru sýna áætlað hraunflæði út frá mismunandi staðsetningum á gosopnun á Sundhnúksgígaröðinni. Í þessum sviðsmyndum er gert er ráð fyrir 800 m langri gossprungu. Sprungur eru merktar með svörtu striki. Hér fyrir neðan eru aðeins nokkur dæmi, en hegðun hraunbreiðunnar getur verið mjög ólík og ræðst af því hvar nákvæmlega sprunga opnast í landslaginu. Lítil tilfærsla á gossprungum getur breitt hraunflæði mikið.
Eldgos milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells – Líkt og 18. desember 2023 og 8. febrúar 2024
- Aðdragandi: Skyndileg, staðbundin og áköf smáskjálftavirkni. Aflögun yfir kvikuganginum.
- Mjög stuttur fyrirvari (innan við 30 mínútur) þar sem kvika á auðvelda leið til yfirborðs vegna fyrri umbrota.
- Hraun nær að Grindavíkurvegi innan við 4 klst. Í seinna hraunflæðilíkaninu hér að neðan næði hraun að varnargörðum við Grindavík á um 1 klst.
Eldgos við Hagafell – Líkt og 14. janúar 2024
- Aðdragandi: Smáskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni sem byrjar við Sýlingarfell og færist suður. Aflögun yfir kvikuganginum. Líklegur fyrirvari um 1 – 3 klst. frá því að fyrstu skjálftar mælast og eldgos hefst.
- Hraun nær að varnargörðum við Grindavík á 1 klst.
- Kvikuinnskot sem nær suður fyrir Hagafell mun líklega valda verulegum sprunguhreyfingum í Grindavík.
Eldgos innan varnargarða við Grindavík
- Aðdragandi: Smáskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni sem byrjar við Sýlingarfell og færist suður. Aflögun yfir kvikuganginum.
- Líklegur fyrirvari um 1 – 5 klst. frá því að fyrstu skjálftar mælast og eldgos hefst.
- Sá möguleiki er fyrir hendi að gossprunga opnist innan varnargarða án þess að gos sé hafið við Hagafell, eins og gerðist 14. janúar þegar ný gossprunga opnaðist rétt við bæjarmörkin um 4 klukkustundum eftir að gos hófst við Hagafell.
- Kvikuinnskot sem nær suður fyrir Hagafell mun líklega valda verulegum sprunguhreyfingum í Grindavík.
Veðurstofan og Háskóli Íslands hafa tekið saman efni sem lýsir eðli umbrotanna sem hafa átt sér stað á Reykjanesskaganum síðan 2019. Sjá hér.