Töluvert magn fíkniefna og stera fundust á heimili Rich Piana eftir að hann var fluttur meðvitundarlaus af heimili sínu í Flórída fyrr í vikunni. Þetta kemur fram á vefmiðlinum TMZ.
Atvik málsins voru þau að Rich missti meðvitund þegar kærasta hans Chanel Jansen var að klippa á honum hárið. Við það féll hann í gólfið og hlaut höfuðhögg.
Fljótlega eftir atvikið fóru að berast sögusagnir um að Piana væri látinn en Chanel segir þær ekki sannar. „Svo það sé á hreinu þá er Piana enn á lífi,“ sagði Chanel í samtali við TMZ.
Ég og fjölskylda hans viljum biðja fólk um að hugsa jákvætt og biðja fyrir honum.
Þegar sjúkraflutningamenn komu á heimili Piana fannst hvítt duft ásamt 20 glösum af sterum. Chanel kannaðist ekki við að Piana hefði átt við fíkniefnavandamál að stríða en sagði að hann hafi notast við stera í rúm 20 ár.
Rich Piana var á tímabili kvæntur vaxtaræktarkonunni Söru Heimisdóttur. Þau skildu síðasta sumar eftir árs hjónaband. Rich er afar vinsæll á samfélagsmiðlum en hundruð þúsunda fylgja honum á Instagram og Youtube.