Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, lætur þá Ólaf Ísleifsson og Karl Gauta Hjaltason heyra það í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag undir yfirskriftinni „Karlar sem hatast við konur“.
Inga skrifar um kvöldið á Klaustri Bar og segir að Ólafur og Karl hafi aðeins átt eitt erindi þangað og það hafi verið að svíkja flokkinn sem kom þeim á þing.
Hún segir það hafi verið kaldhæðnislegt að lesa gagnrýni Ólafs um stjórnarhætti innan Flokks fólksins. Hann sagði að fólki sem starfaði innan hans stafaði mikil orðsporshætta af þeirri skipan mála sem uppi væri.
„Þarna talar maður sem nýverið hefur fullkomlega að eigin frumkvæði og hvötum eyðilagt eigið orðspor sem stjórnmálamaður með því að taka þátt í samsæri sem hefur kastað rýrð á æru þings og þjóðar. Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason félagi hans eru nú farnir í sögubækurnar sem fyrstu þingmenn lýðveldissögunnar sem eru látnir sæta ábyrgð fyrir gjörðir sínar með því að þeir eru reknir úr sínum eigin flokki fyrir afbrot sín.“
Inga segir að það sé gömul saga og ný, bæði í pólitík og atvinnulífi, að til séu karlar sem eiga afar erfitt með að sæta því að hlíta stjórn sterkrar konu.
„Þeir láta engin tækifæri ónotuð til að freista þess að grafa undan slíkum konum. Gera þær tortryggilegar með baknagi, dylgjum, ósannindum og hreinni illmælgi; hatri og heift“.
Þá segir hún að gagnrýni vegna fjármála Flokks fólksins eigi ekki rétt á sér. Flokkurinn hafi framan af barist í bökkum fjárhagslega og frá fyrsta degi hafi verið gætt ýtrustu ráðdeildar þar sem öllu hafi skipt að hafa fullkomna yfirsýn degi til dags. Þetta hafi tekist farsællega og flokkurinn búi nú við heilbrigðan fjárhag.
„Hann er skuldlaus og slíkt er afar fátítt meðal íslenskra stjórnmálaflokka í dag. Reikningar flokksins hafa aldrei hlotið athugasemdir endurskoðenda og þeim hefur verið skilað í samræmi við lög og reglur. Þeir hafa ávallt verið opnir öllum stjórnarmönnum, líka Karli Gauta Hjaltasyni. Halldór Gunnarsson sat í stjórn og þriggja manna fjárhagsráði flokksins, var með aðgang og eftirlitsheimild að heimabanka flokksins. Hann undirbjó ársreikninga ásamt gjaldkera í hendur löggilts endurskoðanda. Halldór Gunnarsson vissi um öll fjármál Flokks fólksins frá A til Ö. Það er aumt að horfa upp á Halldór, Karl Gauta og Ólaf í hefndarleiðangri nú þar sem þeir reyna að sá fræjum efasemda og tortryggni um fjármál Flokks fólksins um leið og þeir vita betur,“ skrifar Inga en greinina er hægt að lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.