Auglýsing

iPhone 6 kynntur á morgun ásamt snjallúri

Á morgun rennur stóra stundin upp fyrir Apple-aðdáendur en þá kynnir tæknirisinn nýjustu vörur sínar. Vefurinn Simon.is er með puttann á púlsínum og hefur ákveðnar kenningar um hvað Apple kynnir til sögunnar á morgun:

Það er nánast öruggt að nýr iPhone 6 verður kynntur með 4,7″ skjá og iOS8 stýrikerfi en mögulega fáum við einnig að sjá nýjan vöruflokk snjallúra eða iWatch eins og tækið kallast samkvæmt orðrómum. Meðal nýjunga sem við búumst við er greiðsluþjónusta sem verður samþætt Passbook appinu sem gerir iPhone notendum kleift að greiða fyrir vörur og þjónustu með símanum.

Myndir sem eru taldar vera af nýjum iPhone hafa lekið á netið og ýmsar kenningar eru á kreiki um hvað gerist á morgun.

Smelltu hér til að lesa færsluna á Simon.is og skoða myndirnar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing