Evrópusambandið hefur tekið Ísland af lista sínum yfir umsóknarríki að sambandinu. Þetta kom fram á mbl.is í vikunni en vísað var í þann hluta á vef sambandsins þar sem hægt er að skoða stöðuna á umsóknarríkjum.
Evrópusambandið hefur einnig tekið Ísland af lista yfir umsóknarríki á þeim hluta vefsins sem útskýrir hvernig ESB virkar. Nútíminn greindi frá því að sunnudag að Ísland væri ennþá þar en ESB hefur nú bætt úr því.
Ísland er því hvergi að finna á lista yfir umsóknarríki á vef ESB.
Ríkisstjórnin tilkynnti Evrópusambandinu um miðjan mars á þessu ári að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki og fór fram á það að landið yrði tekið af lista sambandsins yfir slík ríki.