Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vekur athygli á frétt á heimasíðu Interpol þar sem lýst er eftir íslenskum karlmanni, Pétri Jökli Jónassyni, 45 ára.
Eftirlýsingin er birt að beiðni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er tilkomin vegna tilraunar til innflutnings á tæplega 100 kg af kókaíni frá Brasilíu til Íslands.
Þau sem geta veitt upplýsingar um Pétur Jökul Jónasson, ferðir hans eða dvalarstað, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri i tölvupósti á netfangið abending@lrh.is
Heimasíða Interpol: View Red Notices (interpol.int)