Auglýsing

Íslendingur talinn hafa myrt tíu ára gamla dóttur sína

Íslendingur er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaður um að hafa myrt tíu ára gamla dóttur sína. Þetta herma heimildir Nútímans en samkvæmt þeim á maðurinn að hafa orðið henni að bana nálægt Krýsuvík í gær.

Samkvæmt sömu heimildum hringdi maðurinn sjálfur á lögregluna, sagði frá staðsetningu sinni og að hann hafi orðið stúlkunni að bana. Þá á stúlkan að hafa fundist á þeim stað sem maðurinn var handtekinn.

Lögreglan verst allra fregna af málinu. Fréttin verður uppfærð.

Uppfært 11:52 – Tilkynning frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með til rannsóknar andlát stúlku á grunnskólaaldri.  Tilkynnt var um málið um kvöldmatarleytið í gær og í kjölfarið var einn handtekinn í tengslum við það.  Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing