Jennifer Aniston var gestur Jimmy Kimmel í spjallþættinum Jimmy Kimmel Live í gærkvöldi. Eftir að hafa rætt við Aniston í dágóða stund lagði Kimmel til að þau myndu endurgera Friends-þátt sem Kimmel skrifaði sjálfur. Var hann þá tilbúinn með leikmynd sem var eins eldhúsið hennar Monicu í þáttunum.
Aniston samþykkti að taka þátt í gjörningnum og ekki leið á löngu þangað til Courteney Cox í hlutverki Monicu og Lisa Kudrow í hlutverki Phoebe voru mættar á svæðið. Stórskemmtilegt grín sem þið getið horft á hér fyrir neðan.