Tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir tónlist sína í kvikmyndinni The Theory of Everything eftir James March. Myndin fjallar um ævi vísindamannsins Stephen Hawking og leikararnir Eddie Redmayne og Felicity Jones fara með aðalhlutverkin.
Sjá einnig: Sex hluti sem þú vissir ekki endilega um Jóhann Jóhannsson
Óskarsverðlaunahátíðin fer fram 22. febrúar. Hér má sjá lista yfir tilnefningar.
Óskarsakademían birtir nú reglulega myndir fólki sem er tilnefnt í ár ásamt skilaboðum á spjaldi. Á sinni mynd lýsir Jóhann Jóhannsson yfir að hann ætli að tísta á íslensku frá hátíðinni. Hér er Jóhann á Twitter.
An #Oscars prediction from Original Score nominee @JohannJohannss at #OscarsLunch pic.twitter.com/DjpthJ9vKy
— The Academy (@TheAcademy) February 2, 2015
Gott mál. Við fáum skilaboð frá innherjanum.