Bardagakappinn Gunnar Nelson fagnaði í gær 29 ára afmæli sínu. Gunnar sem nú er í sumarfrí má ekkert æfa næstu 30 til 45 daga eftir að Argentínumaðurinn, Santiago Ponzinibbio, rotaði hann í Glasgow um miðjan júlí.
Þjálfari Gunnars Nelson, John Kavanagh, sendi Gunnari magnaða afmæliskveðju á Twitter en óhætt er að segja að myndin sem fylgir kveðju Johns sé óvenjuleg.
Kveðjuna má sjá hér að neðan.
I'll just stick this pic of @GunniNelson here for the birthday lols pic.twitter.com/fgl7UP2fTt
— Coach Kavanagh (@John_Kavanagh) July 28, 2017