Jón Gnarr varpaði sprengju á Twitter í vikunni þegar hann birti mynd af súrum selshreifum. Ekki nóg með það, þeir voru tilbúnir til neyslu á hvítum matardiski. Og ekki nóg með það, þeir litu út eins og hendur.
happy súrir selshreifar! pic.twitter.com/2Won5sAY2g
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) January 19, 2018
Eins. Og. Hendur.
Og skiljanlega skildi enginn neitt. Grínistinn og ljóðskáldið Dóri DNA reið á vaðið og sagði það sem allir voru að hugsa
Þetta er það lang ógeðslegasta sem ég hef séð
— Halldór Halldórsson (@DNADORI) January 19, 2018
Og fólk krafðist svara
Játning óskast. Tókst þú þessa mynd?
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) January 19, 2018
Og skyndilega var fólk utan úr heimi farið að velta málinu fyrir sér. Jón var meðal annars spurður hvort hann hafi aflimað tröll í kvöldmat
Did you dismember a troll for dinner?
— BoozeFoodTravel (@ChinaMatt) January 19, 2018
What..is this?
— Evelyn ❌ ❌ ❌ (@Evelyn__020) January 19, 2018
Holy F*ck! Are these Hands?!
— nfoonf (@nfoonf) January 19, 2018
Whatch out! Any second it could jump at you and adhere to your face!!!
— Հաննես (@guiltyconsumer_) January 19, 2018
En sumir voru sáttir og jafnvel bara svangir
Hvar fæst svona veislu matur?
— Gudmundur Einarsson (@gumgumeo) January 20, 2018