Grínistinn, leikarinn og fyrrum borgarstjórinn Jón Gnarr birti í gær áhugaverðan lista á Twitter. Listinn er einfaldur og sýnir í hvaða verslunum hann hefur fengið ferskustu ávextina. Sjáðu listann hér að neðan.
Sjá einnig: Jón Gnarr birti mynd af súrum selshreifum á Twitter og fólk skildi ekkert: „Eru þetta hendur!?“
Jón segir listann byggja á reynslu sinni en ávextirnir sem Jón keypti og miðaði rannsóknina við voru: Appelsínur, epli, plómur og apríkósur. Það var verslunin Costco í Garðabæ sem hafði vinninginn hjá Jón að þessu sinni.
Topp 5
Ferskustu ávextirnir:
5: Nettó
4: Krónan
3: Bónus
2: Hagkaup
1: COSTCO(Byggt á reynslu. ávextir sem keyptir eru: appelsínur, epli (pink lady), plómur, apríkósur) afföll í 3, 4 og 5 eru oft 20-50% en lítil sem engin í 2 og 1
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) October 24, 2018