Ákvörðun Þjóðskrár Íslands um að synja beiðni Jóns Gnarr Kristinssonar um að breyta kenninafni sínu í Jón Gnarr hefur verið felld úr gildi. Innanríkisráðuneytið kvað upp úrskurð þess efnis á þriðjudag. Þetta kemur fram á Kjarnanum.
Í stuttu máli þá er fullt nafn Jóns núna Jón Gnarr.
Jón hafði þegar fengið samþykkt að breyta millinafni sínu í Gnarr. Hann hefur barist fyrir því undanfarið að verða skráður með ættarnafnið Gnarr í þjóðskrá.
Nafnabreyting Jóns Gnarr, úr Jón Gnarr Kristinsson í einfaldlega Jón Gnarr, var samþykkt af dómara í Houston í Bandaríkjunum í mars. Þjóðskrá hafnaði svo umsókn Jóns um nafnabreytingu þegar hann kom heim.
Kjarninn hefyr úrskurð Innanríkisráðuneytisins undir höndum. Þar kemur fram að ekki verður sú álýktun dregin að Þjóðskrá Íslands sé óheimilt að leggja til grundvallar erlendar stjórnvaldsákvarðanir eða erlenda dóma um nafnabreytingar.
„Samkvæmt meginreglum íslensks réttar ber að viðurkenna erlendar stjórnvaldsákvarðanir og erlenda dóma sem eru ákvarðandi um persónulega stöðu manna nema þær séu í andstöðu við grunnreglur íslensks réttar eða allsherjarreglu en einnig ef réttar- eða siðferðisvitund almennings hér á landi væri stórlega misboðið með viðurkenningu erlendrar úrlausnar.
Eins og máli þessu er háttað liggur það fyrir að JGK [Jón Gnarr Kristinsson] er íslenskur ríkisborgari með skráð lögheimili á Íslandi en var tímabundið búsettur í Bandaríkjunum þegar beiðni um nafnbreytingu hans var samþykkt af þarlendum dómstólum. Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki annað ráðið en að til nafnbreytingar hafi komið í samræmi við lög í því landi sem JGK var þá búsettur“.