Hasarmyndin Mission: Impossible – Rogue Nation verður frumsýnd um helgina. Þetta er fimmta Mission: Impossible myndin en vinna við þá sjöttu er þegar hafin, samkvæmt Tom Cruise.
„Við erum að byrja að vinna að henni núna og hefjum örugglega tökur næsta sumar,“ sagði Cruise í viðtali við Jon Stewart í þættinum Daily Show í gær.
Stewart lagði þá til að Cruise yrði varpað í eldfjall í myndinni. „Það er góð hugmynd,“ svaraði Cruise. „Hefurðu komið til Íslands?“
Cruise kom til Íslands árið 2012 en ferðin var fræg þar sem síðustu myndirnar náðust af honum og þáverandi eiginkonu hans, Katie Holmes, saman.
Hér má sjá viðtalið við Cruise.