María Marteinsdóttir gekk að eiga unnusta sinn og tómatsósuerfingjann, André Heinz í Svíþjóð um síðustu helgi.
Brúðkaupið hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð en fjallað er um það á vef Aftonbladet.
Veislan fór fram á herragarði í Sörmland, suður af Stokkhólmi og á gestalista voru meðal annars John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en hann er fósturfaðir brúðgumans. Óskarsverðlaunaleikkonan Jodie Foster ásamt leikkonunni Juliu Roberts.
María starfa við Karólínska háskólasjúkrahúsið í Stokkhólmi og Heinz hefur verið búsettur í Svíþjóð í 20 ár.