Auglýsing

Júlíus handtók mann borgaralega í nótt, maðurinn lá á glugga íbúðar á neðri hæðinni

Júlíus Ármann Júlíusson, íþróttaþjálfari og íbúi í Eskihvammi í Kópavogi, handtók karlmann borgaralega í nótt. Maðurinn hafði verið að taka í hurðarhúna húsa og bíla í götunni.  Þetta kemur fram á mbl.is en þar er rætt við Júlíus. 

Að sögn Júlí­us­ar, sem býr í Eski­hvammi í Kópa­vogi, var það al­gjör til­vilj­un að hann fór fram og sá mann­inn ráfa á milli húsa í göt­unni á þriðja tím­an­um í nótt. „Ég fór nú bara fram til þess að sækja mér vatns­glas,“ seg­ir Júlí­us en hann hélt í fyrstu að um blaðbera væri að ræða.

Á hæðinni fyr­ir neðan Júlí­us og fjöl­skyldu hans býr kona með ný­fætt barn og þegar Júlí­us sá mann­inn grípa um hurðar­hún­inn á henn­ar íbúð og liggja á glugga íbúðar­inn­ar stökk hann út.

Í sam­tali við mbl.is seg­ir Júlí­us að maður­inn hafi reynt að forða sér á hlaup­um en hon­um tek­ist að snúa mann­inn niður og halda hon­um. Kon­an á neðri hæðinni var þá vöknuð og eins eig­in­kona Júlí­us­ar og hringdu þær báðar á lög­reglu sem kom á vett­vang skömmu síðar.

Maður­inn barðist um á hæl og hnakka en Júlí­us, sem er bæði knatt­spyrnu- og íþróttaþjálf­ari, náði að halda hon­um niðri þangað til lög­regl­an tók við og hand­tók mann­inn. Við leit á hon­um fund­ust ýms­ir mun­ir sem maður­inn viður­kenndi að hafa stolið úr bif­reiðum í göt­unni. Hann gist­ir nú fanga­geymsl­ur lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing