Auglýsing

Kærasti Söru Heimis hætt kominn eftir hjartaáfall: „Sterar voru ekki ástæðan“

Kraftakarlinn Chris Miller, kærasti vaxtaræktarkonunnar Söru Heimisdóttur, var hætt kominn eftir að hafa fengið hjartaáfall í byrjun vikunnar. Sara greinir frá þessu á Instagram.

„Ég var aðeins nokkrum mínútum frá því að missa hann. Honum líður betur núna eftir aðgerð og ég er svo stolt af mínum manni,“ segir Sara á Instagram og bættir við: „Ég elska þig mjög mikið elskan.“ 

Í færslunni sem sjá má hér að neðan segir Sara ástæðu veikinda Millers ekki vera steranotkun. „Ég vil taka það fram að sterar voru ekki ástæðan fyrir þessu,“ sagði Sara.

Sara og Miller hafa verið saman í tvö ár en hún var áður gift líkamsræktarmanninum Rich Piana. Þau skildu árið 2016, ári áður en hann lést af völdum hjartaáfalls.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing