Steinar Berg, fyrrum eigandi hljómplötuútgáfunnar Steina, hyggst stefna Bubba Morthens og RÚV fyrir ærumeiðandi ummæli og birtingu þeirra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Steinari Berg.
Bubbi sakaði Steinar um níðingsskap og blekkingar í þættinum Popp- og rokksaga Íslands sem var sýndur á RÚV 13. mars síðastliðinn og verður endursýndur í kvöld.
Steinar segist í samtali við Vísi hafa farið fram á að ummælin yrðu klippt úr þættinum en því var hafnað. „Þegar ég bar svo af mér aðdróttanirnar færðist Bubbi allur í aukana í fullyrðingum sínum,“ segir Steinar.
Það er alveg með ólíkindum að RÚV standi fyrir persónulegri aðför að fólki eins og gert er hér, og neiti að hlusta á beiðnir um að ærumeiðandi ummæli séu klippt út.
Steinar hefur opnað vef þar sem hann hefur tekið saman upplýsingar og gögn sem tengjast samskiptum hans við Bubba Morthens. Á síðunni segist Steinar í upphafi ætlað að láta kyrrt liggja.
„En þegar frá leið sárnaði mér óumræðilega þessi svívirðilega tilraun til þess að sverta mannorð mitt,“ segir hann.