Kanadíska þingið hefur samþykkt ný lög sem heimila neyslu kannabis-efna. Kannabislögin voru samþykkt með 59 atkvæðum gegn 29 í öldungadeild kanadíska þingsins í gær.
Kanadabúar munu því geta keypt og selt kannabis í fyrsta lagi í september á þessu ári. Hver einstaklingur sem hefur náð lögaldri mun þá mega að hafa allt að 30 grömm í fórum sínum. Það verður einnig heimilt að rækta allt að fjórar kannabisplöntur á hverju heimili.
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, fagnaði niðurstöðunni á Twitter. Hann segir að það hafi verið of auðvelt hingað til fyrir ungt fólk að nálgast kannabis og að glæpamenn hafi notið ágóðans af sölunni. Eitt af kosningarloforðum hans árið 2015 var að lögleiða kannabis.
It’s been too easy for our kids to get marijuana – and for criminals to reap the profits. Today, we change that. Our plan to legalize & regulate marijuana just passed the Senate. #PromiseKept
— Justin Trudeau (@JustinTrudeau) June 20, 2018
Refsingin fyrir að selja einstaklingum undir lögaldri kannabis verður alvarleg en fólk má reikna með því að sitja í fangelsi í allt að 14 ár fyrir slíkt athæfi.