Auglýsing

Kaney West fluttur á sjúkrahús, sagður hafa glímt við alvarlegar svefntruflanir

Bandaríski rapparinn Kanye West var fluttur á sjúkrahús í gærkvöldi. Hringt var í neyðarlínuna og óskað eftir læknisaðstoð en ekki liggur nákvæmlega fyrir hvað amar að honum.

Hvorki hann né fjölskylda hans hafa tjáð sig við fjölmiðla.

BBC greinir frá þessu. 

TMZ greinir frá því að West hafi verið fluttur á sjúkrahús vegna geðrænna veikinda og að hann hafi glímt við alvarlegar svefntruflanir að undanförnu.

West hafði áður aflýst öllum tónleikum sem hann átti að koma fram á næstu vikurnar. Kris Jenner, tengdamóðir hans, sagði í samtali við bandaríska fjölmiðla að hann væri að niðurlotum kominn og þyrfti á hvíld að halda.

Nokkrar stjörnur hafa tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum og sent rapparanum batakveðjur. Leikarinn og uppistandarinn Ronald Funches skrifar óskar West góðs gengis og segir að andleg heilsa sé ekkert grín og stöðug barátta.

Kim Kardashian, eiginkona West, hafði boðað komu sína á viðburð í New York í Bandaríkjunum í gær en mætti ekki. Þetta hefði verið í fyrsta skipti sem hún mætti á viðburð af þessum toga eftir að hún var rænd í París í október.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing