Kári Stefánsson hefur oft verið orðaðu við forsetaframboð en í þættinum Eyjunni á Stöð 2 í dag sagðist hann ekki haga áhuga á því að vera forseti Íslands.
„Ég held að við ættum að leggja niður forsetaembættið,“ sagði hann og lagði til hvernig Bessastaðir gætu verið nýttir.
Ég held að við ættum að hafa barnaheimili á Bessastöðum, þetta er ágætishús fyrir það.
Kári var einnig spurður út í upptöku sem fór víða í gær og sýndi hann lesa yfir stjórnvöldum um heilbrigðiskerfið. Hann sagði að erindi sitt hafi verið tekið upp án leyfis.
Sjá einnig: Kári lætur stjórnvöld heyra það: „Skiptir engu fokking máli hvar andskotans spítalinn er reistur“
„Það er einn af Pírötunum sem tekur þetta upp án þess að fá leyfi mitt og setur þetta á netið, án þess að fá leyfi mitt. Þetta er dónaskapur. Þetta er dónaskapur að mörgu leyti því þarna er ég að tala yfir hópi fullorðins fólks,“ sagði hann.
Kári bætti við að hann notaði annað orðalag þegar hann væri að tala við börn. „Þannig að þarna eyðileggur þessi Pírati, sem bauð mér að koma þangað, að minnsta kosti þau stílbrögð sem ég vil nota þegar ég tjái mig við fólk,“ sagði hann.
Upptakan vakti gríðarlega athygli í gær. Þar sagði Kári að markmiðið vær ekki endilega að gera það sem er skynsamlegast út frá skipulagsfræði, heldur að hlúa að fólki.
„Og það skiptir engu fokking máli hvar svona andskotans spítali er reistur. Það er aukaatriði! Hvernig vogið þið ykkur að gera það að deilumáli núna? „Give me a fucking chance, alright?“ Við þurfum að gera þetta almennilega, hvar svo sem spítalinn er settur niður.“
Kári nefndi að hin Norðurlöndin eyði hærra hlutfalli af landsframleiðslu í heilbrigðiskerfið en Ísland.
„Þegar það er lagt til að við eyðum 11 prósentum af vergri landsframleiðslu í heilbrigðiskerfið þá segir fjármálaráðherra landsins að við eigum ekki pening til að gera það!“