Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í crossfit, varð í vikunni fyrsti Íslendingurinn til að ná yfir milljón fylgjendum á Instagram. Kraftajötuninn, Hafþór Júlíus Björnsson, var lengi vel sá Íslendingur sem var með flesta fylgjendur á Instagram en nú hefur Katrín skotist framúr honum.
Katrín endaði í fimmta sæti á heimsleikunum sem lauk í Madison, Wisconsin fyrr í mánuðinum á eftir þeim, Annie Mist Þórisdóttir og Ragnheiði Söru Sigmundsdóttir. Katrín skákar þó þeim stöllum í vinsældum á Instagram en Ragnheiður Sara er með rúmlega 900 þúsund fylgjendur á meðan Anníe Mist er með 691 þúsund.
Katrín Tanja er mjög dugleg að nota Instagram en nýverið gerði hún upp heimsleikana í stuttum pistli á Instagram-síðu sinni. Þann pistil má lesa hér að neðan.