Katrín Tanja Davíðsdóttir varð heimsmeistari í CrossFit í gær, annað árið í röð. Sigurinn var glæsilegur og Katrín Tanja fékk rúmlega 35 milljónir króna í verðlaunafé.
Sjá einnig: Katrín Tanja tileinkaði ömmu sinni sigurinn á heimsleikunum: „Þetta er fyrir þig“
Glock skammbyssa var einnig í verðlaun fyrir fyrsta sæti í karla- og kvennaflokki á heimsleikunum í CrossFit í Kaliforníu. Sú ráðstöfun þótti afar umdeild og var harðlega gagnrýnd víða um heim.
Katrín fékk hins vegar ekki að eiga skammbyssuna. Þetta kemur fram á mbl.is. „Ég fékk ekki byssuna. Stelpan sem var hæst í Ameríku fékk byssuna,“ segir Katrín á mbl.is.
Byssan fellur því í hlut Kari Pearce sem hafnaði í fimmta sæti. Katrín segir á mbl.is það ekki vera vonbrigði þó byssan sé ekki hennar.