Söngkonan Kelly Clarkson flutti Rihönnu-smellinn Bitch Better Have My Money í þættinum Live Lounge á BBC1 á dögunum. Clarkson negldi lagið og myndband af flutningnum má sjá hér fyrir neðan.
Clarkson sendi á dögunum frá sér sjöundu plötuna sína en hún var fyrsti sigurvegari bandaríska Idolsins árið 2002.
https://youtu.be/K5K66qKJLo8