Leikkonan Kerry Washington hefur engan áhuga á að tala um að líkami sinn sé kominn „aftur í gamla horfið“, eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn. Þetta kemur fram í viðtali við Washington í tímaritinu Self.
„Fyrir nokkrum vikum spurði umboðsmaðurinn minn hvort mér liði eins og ég væri „komin aftur“ og sagðist telja svo vera,“ segir hún.
Hún var í rauninni að hrósa mér en í kjölfarið áttum við frábært samtal. Niðurstaðan var sú að ég ætla að reyna eins og ég get að tala ekki svona. Þetta snýst ekki um að fara aftur á bak í lífinu.
Washington hefur slegið í gegn í þáttunum Scandal. Hún og eiginmaður hennar, Nnamdi Asomugha, eignuðust dótturina Isabelle Amarchi á síðasta ári. Hún neitar að dvelja í fortíðinni.
„Ég er búin að einbeita mér að því að fara ekki „aftur“ í eitthvað en á sama tíma reyna alltaf að vera besta útgáfan af sjálfri mér,“ segir hún.