KFC í Kanada hyggst fagna 60 ára afmæli sínu með því að senda frá sér fötu sem prentar litlar polaroid-myndir. Þetta er ekki grín.
Fatan kallast The Memories Bucket, eða Minningarfatan og samkvæmt auglýsingunni sem má sjá hér fyrir neðan er prentarinn botn fötunnar, sem inniheldur djúpsteiktan kjúkling.
Virkni Minningarfötunnar er ekki flókin. Maður tekur mynd á símann sinn, kveikir á fötunni, sendir myndirnar yfir í fötuna með bluetooth og fatan sér svo um að prenta myndina.
Samkvæmt Facebook-síðu KFC koma frekari upplýsingar á næstunni en einhverjir heppnir viðskiptavinir fá Minningarfötuna að gjöf.
Introducing our Memories Bucket – Capture memories made with this limited edition anniversary bucket. Want one? #Happy60KFC
Posted by KFC on Wednesday, July 22, 2015