Raunvöruleikastjarnan, Khloé Kardashian staðfesti á Instagram-síðu sinni seint í gærkvöldi að hún eigi von á barni með kærastanum sínum, Tristan Thompson. Hávær orðrómur þess efnis hefur gengið um Vestanhafs í nokkurn tíma en Khloé og Tristan hafa verið saman í rúmega ár. Þetta er fyrsta barn Khloé.
Í færslunni sem sjá má hér að neðan þakkar hún Guði og Tristan fyrir að ger sig að móður. „Guð var með áætlun allan tímann. Hann vissi hvað hann var að gera. Ég þurfti bara að treysta honum og vera þolinmóð,“ skrifar Khloé.
Hún er ekki eina Kardashian systirin því Kim Kardashian á einnig von á barni, snemma á næsta ári.