Auglýsing

Klæddist sömu jakkafötunum í heilt ár til að mótmæla kynjamisrétti

Karl Stefanovic, einn af stjórnendum ástralska morgunþáttarins Today, klæddist sömu jakkafötum í þættinum í heilt ár og enginn tók eftir því.

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Stefanovic vildi mótmæla því að konur eru frekar gagnrýndar fyrir klæðaval en karlar. Hann segir að Lisa Wilkinson, meðstjórnandi hans í þættinum, sé gagnrýnd daglega fyrir fataval, hárgreiðslu, förðun og framkomu.

„Enginn tók eftir þessu. Öllum er skítsama,“ sagði hann í viðtali við Fairfax Media. „Konur eru dæmdar á miklu harkalegri hátt fyrir hvað þær gera, segja og hverju þær klæðast. Fólk talar um viðtölin mín, húmorinn minn og hvernig ég sinni starfi mínu.“

http://youtu.be/VU_xjIeSUqE

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing