Klukkan sex í morgun var lögreglu tilkynnt um ókunnugan mann sem lá sofandi á svölum íbúðar í miðbænum. Maðurinn hafði þá klifrað upp á svalirnar og dáið áfengisdauða. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar sem hafði í nægu að snúast í nótt.
Ekki er vitað hvernig manninum tókst að komst á svalir íbúðarinnar. Eftir að lögreglan kom á staðinn var maðurinn vakinn og hann keyrður heim. Ekki verða frekari eftirmálar af hálfu lögreglunnar.