Auglýsing

Knattspyrnuleikur færður vegna banaslyss á gæsaveiðum: „Vottum fjölskyldu og aðstandendum hins látna okkar dýpstu samúð“

Leikur KFA og Hattar/Hugins í 2. deild karla sem átti að fara fram á Neskaupsstað í kvöld hefur verið færður inn í Fjarðabyggðahöllina. Er það gert vegna hins hræðilega slyss sem varð í gær þegar karlmaður á fertugsaldri lést vegna slysaskots. Var maðurinn á ásamt fleirum á gæsaveiðum við Hálslón norðan Vatnajökuls.

Frá þessu er greint á DV.is en þar er einnig birt tilkynning frá KFA og Hetti/Hugin sem eru eftirfarandi:

Tilkynning KFA

Það er búið að færa leikinn á morgun í Fjarðabyggðarhöllina vegna hins hræðilega slys.

Vottum fjölskyldu og aðstandendum hins látna okkar dýpstu samúð.

Tilkynning Hattar/Hugins

Ákveðið hefur verið að spila leikinn á morgun í Fjarðabyggahöllinni í stað þess að leika á Neskaupstað vegna hins hræðilega slys sem varð fyrr í dag á fjöllum.

Stjórn og þjálfarar HH styðja þessa ákvörðun KFA- Knattspyrnufélag Austfjarða vonumst við til að stuðningsfólk okkar fjölmenni á Reyðarfjörð.

Við vottum öllum þeim sem eiga um sárt að binda okkar dýpstu samúð.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing