Kolbeinn Óttarsson Proppé, nýkjörinn þingmaður Vinstri grænna, er bæði búinn að mæta of snemma og of seint á nýliðanámskeið þingmanna sem hófst í morgun.
Hann mætti fyrst á námskeiðið fyrir viku síðan og skildi hvorki upp né niður þegar enginn lét sjá sig.
Í morgun mætti hann síðan of seint á námskeiðið…
Vísir greindi frá stundvísi Kolbeins fyrir viku og ræddi við nýja þingmanninn.
„Þar sem mér hættir til að vera aðeins of seinn á fundi, því ég gleymi oft að reikna með ferðatímanum, gætti ég þess að leggja nógu snemma af stað í morgun á nýliðanámskeiðið. Viku of snemma, nánar tiltekið,“ sagði Kolbeinn í samtali við Vísi.
„Ég gekk inn í þingsalinn og þar var enginn, og starfsfólkið var búið að spyrja mig hvort námskeiðið væri svona snemma. Ég var alveg viss um það, en það fóru samt að renna á mig tvær grímur, og ég ákvað að kíkja á póstinn minn. Þar stóð þetta allt skýrt og skilmerkilega,“ sagði hann.
Kolbeinn sagði þetta líklega skýrast af tilhlökkun.
„Þetta er einhvern veginn svo skrítið. Það er búið að ráða mann í vinnu, kjósa mann til þings, og maður vill bara byrja. Það er ákveðinn spenningur í þessu. Maður gerir sér grein fyrir því að þetta verður stórt og mikið verkefni, sem ég held að verði bara ansi magnað.“