Bandaríska söng- og leikkonan Dawn Angeliqué Richard, betur þekkt undir listamannsnafninu D∆WN er stödd hér á landi. Hún setti myndband á samfélagsmiðla sína þar sem hún er úti að keyra í íslenskri náttúru að hlusta á Útvarp 101 þegar hennar eigið lag er í spilun.
Logi Pedro, tónlistarstjóri Útvarps 101 var ánægður með atvikið en hann deildi færslu Dawn og skrifaði að þetta væri eitt það nettasta sem hefur komið fyrir lengi.
Dawn sagðist vera orðlaus yfir því að íslensk útvarpsrás skuli vera að spila lagið sitt. Hún lýsti þá yfir áhuga sínum á því að mæta í stúdíó 101 og taka lagið.
Já þetta er eitt það nettasta sem hefur komið fyrir lengi. ???????? https://t.co/gvbNhOCTZT
— Logi Pedro (@logipedro101) December 16, 2018
thank you guys for playing my new single ‘jealousy’. loving Iceland and love you guys. Would love to come to the station and perform it live ?⚜️@101liveradio
— DAWN (@DawnRichard) December 16, 2018