Marvel mun ekki gera fleiri myndir um Köngulóarmanninn en Sony kvikmyndaverið og Disney ná ekki samkomulagi um fjármögnun á myndum um ofurhetjuna. Köngulóarmaðurinn mun því ekki vera hluti af ofurhetjuheimi Marvel áfram.
Tom Holland sló í gegn í hlutverki Köngulóarmannsins í Avengers myndunum. Spider-Man: Far From Home er söluhæsta kvikmynd Sony hingað til.