Konur sem eru við það að fæða börn eru þátttakendur í nýjum bandarískum spurningaþætti sem kallast Labor Games. Þetta er ekki grín. Myndband úr þættinum má sjá hér fyrir neðan.
Í þættinum kemur stjórnandinn Lisa Arch pörum á óvart með því að mæta til þeirra í fæðingastofuna og bjóða þeim að vinna alls konar vinninga ef þau eru tilbúin að taka þátt.
Pörin geta meðal annars unnið ferðir, reiðufé, mat, fatnað og aðalvinningurinn er 10.000 dala háskólastyrkur fyrir barnið sem fæðist á meðan foreldrarnir taka þátt í leiknum.
Fæðingarstofunni er breytt í sjónvarpssal með tilheyrandi blikkljósum, sjónvarpsskjám og tónlist og pörin svara spurningum milli hríða.
Það er er semsagt allt til