Atli Sigþórsson, best þekktur sem rapparinn Kött Grá Pje, varpaði sprengju á Twitter í kvöld þegar hann sagðist vera hættur að rappa. „Fuck það,“ sagði hann, þakkaði fyrir sig og sagðist ætla að skrifa og flytja eintóm ljóð héðan í frá.
Kött Grá Pje er hætt sem rapp act. Fuck það. Skrifa og flyt eintóm ljóð héðan í frá. Takk fyrir mig. ?
— Kött Grá Pje (@KottGraPje) July 9, 2017
Kött Grá Pje er búinn að vera einn fremsti rappari þjóðarinnar undanfarin misseri og fjölmargir hafa lýst yfir vonbrigðum sínum með þessa ákvörðun á Twitter.
Hann á magnað erindi í laginu Brennum allt með Úlfi Úlfi sem kom út árið 2015. Magnús Leifsson leikstýrði einu besta íslenska tónlistarmyndbandi síðari ára við lagið og þar sést okkar maður rúnta um í blæjubíl fullum af St. Bernardhundum.
Margir muna líka eftir smellinum Aheybaró sem kynnti marga fyrir rapparanum sumarið 2013
En nú segist Kött Grá Pje vera hættur að rappa. Og hann tilkynnti það líka á Instagram
Nútíminn hafði samband við Kött Grá Pje sem staðfesti færslurnar tvær. „Orðinn gamall karl og nörd — þarf að gera annað. Semja sjónvarpsþætti til dæmis,“ sagði hann.